Umhirða skartgripa

Umhirðu má skipta niður eftir því hvort skartgripurinn er úr gulli eða silfri

— nú eða gylltu silfri. 

Gullskartgripir (14kt gull +) má fara með í sund og sturtu án þess að falli á þá. En það er margt annað sem hefur áhrif, td húðfita. Ef þú ert mikið með skartgripinn þinn kemur á hann fita sem hægt er að þrífa af með sápuvatni, mjúkum bursta, hreinsiefnum og klútum - einnig getur gull dökknað aðeins í vatninu okkar hér á íslandi. 

Silfurskartgripi, rhodium og gyllt  skart mælum við alltaf með að taka af sér fyrir svefn, sund, rækt og gufu. Einnig er mikilvægt að bera á sig ilmvatn, krem og olíur áður en þú setur skartgipi á þig. 

Gylling á silfurskartgripum er húð, þó svo að húðin sé þykk og fín er húð alltaf húð og dugir ekki að eilífu. Gylling á hringum er húð og ekki allir átta sig á að taka þarf hringinn af fyrir handþvott ef gyllingin á að duga sem lengst. 

Einnig skal geyma gyllta skargripi í lokuðum kassa og alls ekki á skargtgripahengi inn á baðherbergi - þá er hann fljótur að oxast. 

Einnig getur sýrustig í húð (PH-gildi) haft áhrif á gylllingu. 

Þegar falla fer á gyllingu eða gylling fer að eyðast hafið þá í huga að skartgripi úr eðalmálmum (líkt og allir skartgripir frá okkur) er hægt að gylla aftur – og það er eðlileg umhirða að þurfa að gylla húðaðan skartgrip aftur - hvenær og hversu oft fer alveg eftir notkun. 

Einnig skal hafa í huga að það fellur á silfur hér á landi og silfrið verður svart, einnig silfur undir gyllingu. 

Eðalsteinar og perlur  

Hárlakk og ilmvatn er eitthvað sem ætti að halda frá eðalsteinum og perlum – perlur eru sérstaklega viðkvæmar fyrir þessum efnum - áferðin verður mött.

Eðalsteinar eru misviðkvæmir - en ekki hika við að spyrja starfsfólk by lovisa.

Ekta gull

Þessir skartgripir eru allir úr 14kt gulli

Fléttan er fáanleg í 14kt gulli og silfri sem er annaðhvort rhodium húðað eða gyllt.

Hvernig hugsa ég um fléttuna mína

Komið í veg fyrir brot í fléttu

Við mælum alltaf með að taka fléttuna af fyrir svefn, í svefni getur komið brot í fléttuna sem veikir hana og hún getur á endanum slitnað.

Við sjáum alltvaf þegar óeðlileg brot er í fléttunum og hvort sé um galla að ræða. 

Það getur ýmislegt gertst, t.d festast armbönd í peysu eða krækjast um hurðarhún. Þá kemur tog og við sjáum það glögglega og það telst ekki sem framleiðslugalli. 

Gullsmiðir eru klárir í að laga fléttur sem hafa orðið fyrir hnjaski en brot eftir svefn eða tog getur það reynst erfiðara. 

Gylling og endurhúðun

Gylltar fléttur og rhodum er allaf hægt að húða aftur eftir eðlilega notkun jafnvel þú stelist með þína í sund, sturtu, rækt og gufu. Eðalmálma er nefnilega alltaf hægt að gylla aftur. 

PH-gildi húðarinnar hefur líka árif á gyllingu - hátt sýrustig eyðir gyllingunni hraðar. Þegar þú ert ekki að nota fléttuna þína, geymdu hana í skartgripaboxi eða öðru lokuðu boxi – ekki í skál inni á baðherbergi, það er ávísun á oxun! 

Almenn umhirða

Þú getur keypt hjá okkur hreinsiefni og klúta til að halda fléttunni þinni glansandi og hreinni. 

Þú getur einnig komið með hana til okkar og við hreinsum hana hér á verkstæðinu. Húðfita og ilmvatn er ekki góð blanda fyrir flétturnar þá missa þær glansandi áferðina. 

Settu alltaf á þig ilmvatn áður en þú setur fléttuna á þig - það er góð regla. 

14kt gullfléttur má hinsvegar fara með í sund og sturtu en til að hún haldi fallegri áferð skaltu varast krem, olíur og ilmvatn. 

Ekki sofa með fléttuna - þú heldur henni bæði heilli og hreinni lengur þannig. 

Ertu með frekari spurningar?