Lovísa Halldórsdóttir Olesen

Lovísa Halldórsdóttir gullsmiður

Lovísa hefur starfað sem gullsmiður allt frá útskrift úr Tækniskólanum árið 2007 með meistaragráðu í gull og silfursmíði. Allt frá barnæsku hefur Lovísa elskað ýmsar skapandi greinar og snemma ljóst að listaleiðin væri hennar braut í lífinu.  Útskrifaðist hún  með stúdentspróf á listasviði/fatahönnun árið 2002. Eftir nokkuð mörg ár á gullsmíðaverkstæði og síðar í rekstri á heildsölu fyrir gullsmiði hóf hún  rekstur undir eigin vörumerki árið 2013.    

Lovisa sækir áhrif sín mest úr hversdagslífinu þar sem tvinnast saman sígild hönnun og nýjustu straumar. Litir, hráefni og form hafa ávallt hrærst mikið í höfði hennar sem setur mark sitt á hinar fjölbreyttu skartgipalínur sem hún hannar og smíðar 

Fyrsta verslunin var lítil kósý verslun í bílskúrnum á Garðaflötinni en árið 2021 flutti starfsemin öll í eigin húsnæði í Vinastrætið í Urriðaholti í Garðabæ.  Þar sameinast stór og falleg verslun bylovisu með vel útbúnu verkstæði þar sem skartgripirnir eru  framleiddir og þjónustaðir. 

Við leggjum mikið upp úr góðri upplifun þeirra sem heimsækja okkur í Vinastrætið  og veitum topp þjónustu í hlýlegu umhverfi.

Við sendum allar netpantanir daglega frá okkur með Póstinum.